Keflavík hefur í gegnum tíðina verið ein helsta uppstrétta íslenskrar tónlistar. Helstu tónlistarmenn og hljómsveitir þjóðarinnar koma úr þessum margrómaða bítlabæ og tónlistarsagan, bæði í fortíð og nútíð er sterk. Hver man ekki eftir Rúnari Júl, Gunnari Þórðarsyni, Magnúsi Kjartanssyni, Jóhanni Helgasyni, Hljómum, lónlí blú bojs og Trúbrot ? Jú þessir snillingar hafa í gegnum tíðina snert strengri innra með okkur öllum, tætt okkur út á dansgólfið eða bara fengið okkur til að syngja dægurperlurnar í sturtunni á morgnanna.
Hjálmar, Klassart, Of monsters and men, Valdimar, partýið heldur stanslaust áfram í bítlabænum sem virðist skila af sér tónlistarmönnum á heimsmælkvarða. Geimsteinn er án efa hljóðver þar sem ótrúlegustu listamenn Íslands hafa stigið sín fyrstu skref í átt til frægðar, allt þetta og meira til gerir það að verkum að ekkert bæjarfélag á Íslandi getur tekið titilinn “bítlabær” af Keflavík.
Það er við hæfi að blása til tónlistarveislu í bítlabænum og koma saman helstu tónlistarsnillingum landsins og líka boða til leiks erlenda tónlistarmenn svo fá nú tækifæri á að koma fram í sjálfri Keflavík. Yfir 100 tónlistarmenn og hljómsveitir taka þátt í ævintýrinu undir yfirskriftinni Keflavík Music Festival, tónlistarhátíðinni sem fram fer dagana 7 til 10 júní næstkomandi.
Hátíðin fer fram í miðbæ Reykjanesbæjar á helstu skemmtistöðum bæjarins. Verslanir, veitingarhús og bæjarfélagið verða með í stemmningunni þar sem fjölbreytileikinn ræður ríkjum. Þetta er í fyrsta skiptið sem blásið er til hátíðarinnar en verður á efa árlegur viðburður í bítlabænum. Hátíðin sem verður ein sú stærsta á landinu, er einnig gullið tækifæri fyrir nýja og óþekkta tónlistarsnillinga til að koma sér á framfæri, í bítlabænum fá allir tækifæri til að slá í gegn. Hægt er að skrá sig til leiks með að hafa samband hérna á síðunni.
